Hækkum ekki laun, eyðum atvinnuleysi

Auðvitað þurfum við launþegar á að halda 25.000 króna launahækkun yfir alla línuna, helst meira, miklu meira. Kristján Gunnarsson skilur þarfir okkar svo sannarlega.

En bíðum við. Staðan er nú þannig að meira en 18.000 manns eru án atvinnu á landinu. Það hlýtur að há atvinnulífinu að eiga ekki kost á þessu fólki, þekkingu þeirra og reynslu. Og auðvitað hlýtur Kristján að hafa áhyggjur af öllu þessu atvinnuleysi.

Væri nú ekki skynsamlegra að Kristján og aðrir verkalýðsforkólfar myndur fara þá leið að „krefjast“ þess að Samtök atvinnulífsins sæju til þess að 6000 manns fengju atvinnu á næstu sex mánuðum. Á móti myndum við hin afsala okkur öllum kröfum um launahækun á sama tíma og jafnvel lengur. 

Um þetta hlýtur að geta náðst þjóðarsátt. Staðreyndin er bara sú að ekkert gerir ríkisstjórnin annað en að leggja til að gerð verði áætlun um áætlun að skipulagi um tillögur vegna skorts á áætlunum að skipulagi ...


mbl.is Þiggja ekki 7 þúsund sí-svona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þessi „skorrdals“ skilst illa. Mér er samt sama, hann virðist lítið hafa fram að færa.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 20.5.2009 kl. 14:57

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þú þarna Skorrdal. Biðst afsökunar, ég er ekkert að gera lítið úr þér. Vandamálið er bara það að ég skil ekki þessar athugasemdir þínar. Það sem verra er, ég hef misst áhugann.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 21.5.2009 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband