Hlustuðu menn á Davíð án þess að heyra

Sumir hlustuðu á Davíð Oddsson í sjónvarpinu í gærkvöldi en tóku hreinlega ekki eftir því sem hann sagði. Tóku kannski bara eftir því sem þeir vildu heyra, - gleymdu öðru.

Eignarhaldsfélög í eigu stjórnmálamanna og annarra þekktra manna í þjóðfélaginu á að hafa fengið sérþjónustu í bönkunum, svona eins og Björn Ingi Hrafnsson í Kaupþingi. Hefði einhver annað orðað þetta og haldið því til dæmis fram að Birgir Ármannsson væri með óhreint mjöl í pokahorninu væri annað uppi á teningnum. Hins vegar var þetta „bara“ Davíð, og hann er nú svona og svona ...

Ummæli Davíðs þarf að skoða mjög nákvæmlega. Þar eru fjöldi fréttapunkta fyrir duglega blaðamenn sem nenna að haf eitthvað fyrir hlutunum. Þess í stað eru menn að velta sér upp úr því að Davíð hafi eitthvað verið að hnýta í spyrilinn.

Hvernig er það, greina menn ekki aðalatriðin frá aukaatriðunum?


mbl.is Gæti talist mútuþægni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Er ekki Lúðvík Bergsveinsson þarna einhverstaðar Hvað með vara formann Sjálfstæðisflokksins sem sagði um breska sérfræðinginn að hann ætti nú bara að fara í endurmenntun.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 25.2.2009 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband