Óhollt að vera með Davíð á heilanum

Fjölmargir bloggarar eru gjörsamlega með Davíð Odsson á heilanum. Það getur ekki verið hollt fyrir sálarlífið. Fjölmargir bloggarar og landsmenn kenna Davíð Oddssyni um allt sem miður hafi farið í efnahagsmálum og við liggur að þeir kenni manninum um allt sem miður hafi farið hér á landi og jafnvel erlendis. Það er ekki heldur hollt að einfalda svo málin.

Lífið er ekki svo einfalt að hægt sé að finna blóraböggul fyrir allt það sem miður fer. Búið er að magna upp alveg óskaplega heift gagnvart einum manni. Eflaust má margt út á hann setja og það sem hann hefur staðið fyrir bæði sem stjórnmálamaður og sem seðlabankastjóri. Það er bara svo yfirgengilegt rugl að halda því fram að Davíð sé holdgerfingur kreppunnar að það tekur ekki nokkru tali.

Persónulega sé ég ekkert því til fyrirstöðu að Davíð snúi aftur í stjórnmálin. Margir munu fagna því. Hins vegar held ég að ekki sé nokkur von til þess að hann komi aftur.


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Segjum svo að almúgur Íslands séu rollur. Fjárhirðir er valinn til þess að leiða rollurnar og halda utan um hópinn. Fjárhirðirinn sofnar á verðinum og úlfur kemst í hirðina, rollurnar hlaupa hingað og þangað. Sumar drepast. Aðrar eru bara einar eftir án hirðar.

Hver ber ábyrgð á þessu? Rollurnar? Fjárhirðirinn?

Sennilega er best að refsa rollunum. Þær segja bara me.

Sumarliði Einar Daðason, 4.12.2008 kl. 08:45

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Hvað er fé án hirðis?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 4.12.2008 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband