Spilltir hæstaréttardómarar ... eða hvað?

Mér skilst að nokkrir hæstaréttardómarar dragi andann nokkurn veginn án utanaðkomandi aðstoðar. Það er nú meiri andskotinn og bendir til spillingar.

Nokkrir þeirra hafa fengið aðstoð heilbrigðiskerfisins til að koma sér til heilsu eftir veikindi og jafnvel slys. Þetta telst auðvitað til misnotkunar á kerfinu.

Einn hæstaréttardómari er skráður í íþróttafélagið Fram, sem er bara hrikalega ljótt og andstyggilegt og ætti ekki að leyfast.

Svo eiga þeir húsnæði og jafnvel sumarbústaðalóðir. Hvað er eiginlega að gerast? Þetta lið virkar næstum því eins og venjulegt fólk.


mbl.is Lítt skuldugir en félagslyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta lið virkar næstum því eins og venjulegt fólk.

"Skuldir: engar" - nei, ekki eins og venjulegt fólk á Íslandi.

Tveir á launum hjá innanríkisráðuneytinu fyrir aukastörf. - Þrískipting ríkisvalds góðan dag???

Guðmundur Ásgeirsson, 3.1.2017 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband