Ekki logar á perunni hjá Degi borgarstjóra

Fékk í kvöld orðsendingu frá manni nokkrum sem telst vera mjög ábyggilegur. Hann heldur því fram að aðeins 134 perur séu í ár á jólatrénu á Austurvelli. Í fyrra voru þær 148 og árið þar áður voru þær 166. Ástæðan fyrir fækkun pera á tréinu sem og að slökkt sé á því á kvöldin sé sparnaður borgarstjórans.

Þetta þýðir einfaldlega að slökkt er á jólatrénu þegar skyggja tekur ... Margir velta því fyrir sér hvers vegna ljós sé látið loga á því meðan dagsbirtu nýtur. 

Velti því fyrir mér hvort þetta sé satt.

 


mbl.is Óslóartréð tendrað í 64. skipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Tók eftir því að það eru 40 kerta perur í tréinu þetta árið í samanburði við 60 kerta í fyrra og 100 í hitteðfyrra.surprised

Jósef Smári Ásmundsson, 28.11.2016 kl. 13:17

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Á næsta ári verða platljós á platjólatré ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 28.11.2016 kl. 13:23

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Þeir gætu náttúrulega sett stefnuljós á tréið. Það er helmings sparnaður.

Jósef Smári Ásmundsson, 28.11.2016 kl. 13:57

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Góð hugmynd ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 28.11.2016 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband