Leiftrandi beittur og ósvífin áróður gegn staðreyndum

Ég get ekki að því gert, en stundum dáist ég að vinstrimönnum. Ekki fyrir hugsjónir þeirra heldur málflutning, sem er oft leiftrandi, beittur og ósvífinn. Í baráttu fyrir málstaðnum þvælast aukaatriði ekki alltaf fyrir, staðreyndir eru lagðar til hliðar og fyrri orð og gjörðir löngu gleymd.

Þetta segir Óli Björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, í hárbeittri ádeilugrein í Morgunblaði dagsins.

Í greininni telur hann upp hvernig margir vinstri menn fara á svig við sannleikann í gagnrýni sinni á Sjálfstæðisflokkinn og ríkisstjórnina.

Hann segir um þessi mál:

Flugvallarmálið

Skipulega er unnið að því að loka Reykjavíkurflugvelli, þvert á vilja meirihluta landsmanna og höfuðborgarbúa. 

Icseave:

Tvær þjóðaratkvæðagreiðslur, þar sem yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar hafnaði því að greiða skuldir einkaaðila, dugðu ekki til. Þess í stað var gert lítið úr fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu frá stofnun lýðveldisins - hún sögð dapurleg markleysa.

ESB-aðildin:

„Það dettur engum í hug að við göngum í Evrópusambandið nema þjóðin sjálf taki ákvarðanir í því máli jafnvel bæði hvort við eigum að fara í slíkar viðræður og þá að niðurstaðan verði lögð í dóm þjóðarinnar,“ sagði þáverandi formaður Vinstri grænna á þingi 2003.

Í júlí 2009 tók Steingrímur J. Sigfússon þátt í því að koma í veg fyrir að „þjóðin sjálf“ tæki ákvörðun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þá var hann fjármálaráðherra ríkisstjórnar „norrænnar velferðar“.

Seinni einkavæðing bankanna:

Í stefnuyfirlýsingu eftir kosningar 2009 gaf ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna fyrirheit um að „beita sér fyrir opinni stjórnsýslu, auknu gagnsæi og lýðræðisumbótum“. Það þurfti því ekki aðeins pólitískan kjark, heldur töluverða forherðingu, til að ganga til samninga við kröfuhafa og afhenda þeim tvo banka. Þá var vélað í bakherbergjum í lokaðri stjórnsýslu án nokkurs gagnsæis.

Heilbrigðismálin:

Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur verið sökuð um að „hola“ velferðarkerfið að innan og á sama tíma lækka skatta á efnafólk m.a. með „afnámi“ auðlegðarskatts. Hvorki staðreyndir né saga flækjast fyrir og ekki í fyrsta skipti. Útgjöld til heilbrigðismála og almannatrygginga hafa verið stóraukin frá tíma vinstristjórnarinnar. Um það verður ekki deilt. Þingmenn geta tekist á um hvort auka hefði átt útgjöldin enn meira og jafnvel hvort fjármunum sé öllum skynsamlega varið.

 

Auðlegðarskatturinn:

„Norræna velferðarstjórnin“ lagði skattinn á og hét því að hann væri tímabundinn. Samkvæmt lögum skyldi skatturinn falla niður í lok árs 2013. Oddný Harðardóttir var afdráttarlaus í áðurnefndu viðtali við Viðskiptablaðið:

„Það eru ákveðin vandamál með auðlegðarskattinn. Hann er þó tímabundinn og ég mun leggja áherslu á að endurnýja hann ekki.“

Hvorki meira né minna: Fjármálaráðherra vinstristjórnarinnar lagði áherslu á að auðlegðarskatturinn yrði ekki endurnýjaður. Svo er ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sökuð um að afnema skattinn og hygla þar með eignafólki. Þó var ekkert annað gert en láta ákvörðun meirihluta „norrænu velferðarstjórnarinnar“ ná fram að ganga og ákvæði laga féll úr gildi.

Við þetta má bæta að alltof oft eru litlar efndir á loforðum stjórnmálaflokka þegar þeir komast í stjórn. Oft er þá farið í hrossakaup um hin ólíklegustu mál eins og dæmin sanna.

Verra er þó þegar hrein handvömm, þekkingarleysi og getuleysi leiða til ótrúlegra niðurstaðna eins og raunin var með ESB-aðildina og Icesave-málið, svo dæmi séu nefnd.

Eða þegar kröfuhafar fengu tvo banka gefins. Um leið fengu þeir 30% afslátt af húsnæðislánakröfunum til að gera gjöfina huggulegri. Skuldarar nutu þó einskis af þessum afslætti, hann hirtu kröfuhafar og slitastjórnir.

Annar þessara banka, Íslandsbanki, er nú kominn aftur í eigu ríkisins, kröfuhafar nenntu ekki að standa í þessu og hrökkluðust burtu þegar þeir núverandi ríkisstjórn bauð þeim útgönguleið. Enginn afsláttur af húsnæðislánakröfum fylgdi þó í þetta sinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Ég í einfeldni minni taldi þig raunsæismann, þú reynist svona týpiskur kreddukall, sem hefur allt á hornum sér sem samrýmist ekki þínum þröngu skoðunum, rörskoðunum. Alveg sama hvað kemur út úr sjálfstæðisflokknum, good or bad, er flokkað gott, mitt fólk. Þú skoðar ekki NEITT, að síðasta stjórn tók við Icesave án þess að hafa nokkurn áhuga á því, svona eins og vandamál sem þú færð upp í andlitið á þér, án þess að vilja það. Talar eins og þið vitleysingjarnir, að vandamálið hafi verið Jóhönnustjórnarinar, sem þurfti að leysa ykkar vandamál, vandamál sem framsjallar bjuggu til. Þú hefur valdið mér miklum vonbrigðum Sigurður!

Jónas Ómar Snorrason, 24.8.2016 kl. 10:52

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Sæll Jónas. Auðvitað þykir mér miður að hafa valdið þér vonbrigðum. Það var ekki ætlunin enda skrifa ég sérstaklega með þig og nokkra aðra í huga.

Hins vegar veit ég ekkert hvers vegna þú ert óánægður með mig og því útilokað að ég geti bætt mig.

Annars er það alveg rétt hjá þér „að síðasta ríkisstjórn tók við Icesave án þess að hafa nokkurn áhuga á því“. Það var því að vonum að ríkisstjórnin afgreiddi það með hangandi hendi og þjóðin rasskellti hana tvisvar í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir léleg vinnubrögð.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 24.8.2016 kl. 11:06

3 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Það er einmitt þetta viðhorf sem ég var að tala um Sigurður. Einhverjumöðrumaðkenna viðhorfið. Þú horfir EKKERT á umhverfið á þessum tímum, nánast gjaldþrota þjóðfélag af YKKAR völdum, skratti hvað þú setur þig á háan hest Sigurður, sennilega berð þér á brjóst fyrir árangurinn núna, sen er 100% síðustu ríkisstjórn að þakka. Þessi ríkisstórn álpaðist meir að segja til þess að auglýsa það.

Jónas Ómar Snorrason, 24.8.2016 kl. 11:27

4 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Áhugi síðustu ríkisstjórnar var fyrst og fremst að lausn íslensku þjóðarinar, hins vegar fáir þú annara vandamál í andlitið á þér, hvað gerir þú, leysir það. Það var það sem sú ríkisstjórn gerði. Hvernig það gerðist á endanum er aukaatriði, algert aukaatriði. Hættu svo þessu aumingjatali Sigurður, hefur ekkert efni á því!

Jónas Ómar Snorrason, 24.8.2016 kl. 11:36

5 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Jónas, það er ekki hollt að vera svona reiður. Þú verður bara að sætta þig við að ekki hafa allir sömu skoðun og þú. Ég sætti mig við það, en um leið leyfi ég mér að tjá skoðun mína á hverju sem er, hvort sem einhverjir telji að ég hafi efni á því eða ekki.

Meðal staðfastra skoðana minna er að síðasta ríkisstjórn hafi verið sú aumasta sem hefur starfað hér á landi. Sjá þennan link: http://sigsig.blog.is/blog/sigsig/entry/1298281/.

Hafðu það svo ætíð sem best, Jónas. Vona að þú haldir áfram að lesa pistlana mína og skammir mig hressilega fyrir. Þá veit ég að það er líf þarna úti.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 24.8.2016 kl. 13:26

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Sigurður, nú sýnist vera komin á samvinna um byggingarland á flugvallarsvæðinu meðal B.B og arabans.  Þetta er augljóslega hagsmuna mál peninga manna en ekki Íslandans.   

Hrólfur Þ Hraundal, 25.8.2016 kl. 15:24

7 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Svona viðhorf, sem þú sýnir þykir mér gott Sigurður. En mig langar að spyrja þig, hefur þú skoðað gröf frá t.d. 2009-20014, um endurreisn Íslands. Það má margt gagnrýna síðustu stjórn, eiginlega allar sjórnir undanfarina ára ef því er að skipta, en Jóhönnustjórnin tók sennilega við því allra erfiðasta búi sem um getur. Fær tvær veglegar vöggugjafir, hrun Íslands og Icesave. Meðan núverandi stjórn fékk vaxandi kaupmátt og velmegun í vöggugjöf, en hagar sér eins og fíll í yfirfullri postlínsbúð. Svo styður þú þetta algerlega blindandi, sem er mér óskiljanlegt af svo hæfileykaríkum manni eins og þér. 

Jónas Ómar Snorrason, 26.8.2016 kl. 03:06

8 identicon

Það er þetta með rörskoðanirnar.

Meira að segja Sigrún Davíðsdóttir á RUV neyddist til að viðurkenna í pitstli um daginn að grunnurinn að stöðunni í dag séu ákvarðanir teknar haustið 2008 (neyðarlögin).

ls (IP-tala skráð) 26.8.2016 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband