Eignarétturinn er friðhelgur

Þeir eru til sem taka það sem þeir eiga ekki. Slíkt kallast einfaldlega þjófnaður og er ekki liðinn í nútíma þjóðfélagi. Má vera að Píratar telji að ljóð, sögur, tónlist, myndir, kvikmyndir, sjónvarpsmyndir ekki bundið neinum höfundarétti. Það er hins vegar mikill misskilningur.

Í íslensku samfélagi er eignaréttur og eignaréttindi ein mikilvægustu réttindum fólks. Þau ber að verja með öllu afli. Ef það er ekki gert verður upplausn og óregla.

Við skulum vara okkur á þeim stjórnmálaskoðunum sem fela það í sér að menn megi taka það sem þeir vilja án samninga og endurgjalds. Sögnin að deila í merkingunni að skipta með öðrum eða afhenda öðrum er falleg en sú deiling er útilokuð án þess að eignaréttindi séu hjá þeim sem slíkt gerir.


mbl.is Hvattir til að deila íslensku efni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Elfar Gylfason

Það er fjarri mér að mótmæla því sem þú segir hér að ofan.  Þó vil ég benda á að eignarréttur landeigenda á Íslandi hefur verið fótum troðinn árum saman af yfirvöldum og þá kannski mest af þeim þingmönnum og ráðherrum sem settu af stað rán íslenska ríkisins á löndum sem í kjölfarið eru kölluð "þjóðlendur".

Högni Elfar Gylfason, 26.7.2016 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband