Viđ ţurfum ađ takmarka fjölda ferđamanna

Lítil ţjóđ sem ekki einu sinni hefur innviđina í lagi á ekkert međ ađ taka á móti ferđamönnum sem eru fimm sinnum fleiri en heimamenn. Ţetta er einföld stađreynd.

Hingađ til lands eru fluttir ţúsundir útlendinga til ađ vinna ţau störf sem Íslendingar líta vart viđ vegna ţess hversu illa ţau eru borguđ. Ţetta eru störf á hótelum og veitingahúsum, ţrif, uppvask og annađ álíka. Oftar en ekki er launin smánarleg og samkvćmt fréttum fylgja ţau ekki kjarasamningum og eru ţví ólögleg og ekkert annađ en ţrćlahald.

Ferđamannastraumurinn er ađ fćrast fyrr og fram eftir ágúst er á mörgum stöđum orđiđ fullbókađ. Ţetta gerir ţađ ađ verkum ađ á öđrum stöđum er laust en ţau pláss nýtast ekki ţví komnir eru flöskuhálsar á mest sóttu stöđunum.

Ţetta segir Sćvar Skaptason, framkvćmdastjóri Bćndaferđa, á forsíđu Fréttablađs dagsins. Hann hefur rétt fyrir sér.

Í stuttu máli er stađan sú ađ útlendingum er mokađ inn í landiđ en ekki er hćgt ađ ala önn fyrir ţeim vegna ţess ađ húsnćđi og ađra ađstöđu vantar, til dćmis á Suđurlandi. Međ rökum má segja ađ landiđ sé einfaldlega uppselt á háannatímum.

Vegir landsins ţola orđiđ ekki ţá umferđ sem er á ţeim. Ţeir eru fljótandi, eins og sagt er, síga og rísa víđa eftir árstíđum. Hringvegurinn er einfaldur, ein akrein í hvora átt og ekki sem skilur á milli. Ţetta fyrirkomulag býđur hćttunni heim, svo einfalt er ţađ.

Náttúran á helstu ferđamannastöđum er farin ađ láta á sjá. Víđa eru of margir á sama tíma og upplifun hvers og eins er ţeim mun minni og lakari. Átrođningur eykst, göngustígar eru trođnir niđur og nýir myndast. Rof verđur í jarđveg og skemmdir hafa orđiđ og ţćr aukast smám saman.

Vinsćlar gönguleiđir eru ofsetnar eins og leiđin milli Landmannalauga og Ţórsmerkur, Laugavegurinn. Tilheyrandi átrođningur og skemmdir fylgja. 

Ökuleiđir á hálendinu fyllast af slyddujeppum, ferđafólk fer sér ađ vođa í ám og fljótum. 

Viđ sem erum utan viđ ferđaţjónustuna sjáum ađ viđ svo búiđ má ekki standa. Koma verđur böndum á gullgrafaraćđiđ, gera atvinnugreinina ábyrga fyrir ţví sem hún er ađ gera sem og nýtingu á landsins gćđum sem hún nýtir án endurgjalds.

Einfaldasta leiđin til ađ takmarka komu útlendinga til landsins er komugjald. Ţađ ćtti ađ vera 200 til 300 dollarar á mann. Ein og hálf milljón ferđamanna er meira en ţjóđin rćđur viđ. Hin lausnin er ađ flytja inn fólk í stórum stíl til ađ vinna störfin. Sumum finnst ţađ í lagi og benda á ađ ţađ hafi veriđ gert víđa um lönd. Vandinn er hins vegar sá ađ viđ erum fámenn, miklu fámennari en öll viđmiđunarlönd.

Ég hef hingađ til veriđ á móti takmörkunum í ferđaţjónustu og skattleysi hennar umfram ađrar atvinnugreinar. Ţađ ţurfum viđ hins vegar ađ taka til gagngerrar athugunar. Of mikiđ er í húfi. Heilt land og náttúra ţess. Viđ erum komin ađ ţolmörkum, ţjóđin getur ekki tekiđ á móti fleiri ferđamönnum.

 


mbl.is 47% tilbúnir ađ greiđa komugjald
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband