Ómanneskjulegar kröfur á Landspítalnum valda skađa

Síđan virđist refsigleđin vera í hámarki, bođskapur skilnings, umburđarlyndis og fyrirgefningar gleymdur og sjálfsgagnrýni kćrandans, ríkisins, ekki til. Hugtakiđ „manndráp af gáleysi“ er til skammar í svona máli.

Mér finnst menn hefđu átt ađ setjast yfir ţetta dćmi og hugsa ţađ miklu betur. Ađ ţví loknu hefđi ég helst viljađ sjá ríkisvaldiđ biđja ađstandendur afsökunar á ţeim mistökum sem urđu, bjóđa ţeim sanngjarnar bćtur og veita síđan hjúkrunarliđinu, sem ađ ţessu kom, áfallahjálp og allan annan stuđning, sem hćgt er ađ koma međ í slíkum ađstćđum. Loks hefđi ég viljađ sjá Alţingi Íslendinga gyrđa sig í brók og koma međ verulega auknar fjárveitingar spítalanum til handa til ađ reyna ađ fyrirbyggja framhald slíkra atburđa.

Ţannig ritar Ţórir Stephensen, fyrrum dómkirkjuprestur, í grein í Morgunblađi dagsins. Hann rćđir um mál hjúkrunarfrćđings á Landspítalanum sem kćrđur er fyrir manndráp af gáleysi. Hann segir ţađ hafa „sótt međ auknum ţunga á hug minn“ og ţví riti hann greina.

Ég tek undir međ Ţóri og mér segir svo hugur um ađ fleirum líki illa viđ alla málavexti en ţá orđar hann svona:

Ţegar ég horfi á ţetta mál, ţá kemur strax upp spurningin: Hvernig getur spítali, háskólasjúkrahús, bođiđ starfsmanni upp á slíkar ađstćđur? Ţarna eru kröfurnar ómanneskjulegar. Ţćr beinlínis kalla á yfirsjónir, enda hefur spítalinn einnig veriđ kćrđur. En hvers vegna er álagiđ svona mikiđ? Ég nefndi undirmönnun. Hún er stađreynd. Og af hverju? Af ţví ađ spítalanum er haldiđ í fjársvelti. Alţingi neitar ađ greiđa ţađ fé, sem spítalinn sýnir međ rökum, ađ hann ţarf. Frá ţví hefur veriđ sagt, ađ mikil ţröng hafi veriđ í kringum sjúklinginn. Okkar gamli spítali býđur ekki upp á mannsćmandi ađstćđur, hvorki fyrir starfsfólk sitt né sjúklinga. Ţví hygg ég, ađ fáir starfsmenn hans muni neita.

Einhvern veginn hef ég ţađ á tilfinningunni ađ sá starfsmađur sem hér bókstaflega undir högg ađ sćkja sé fórnarlamb og ţá fyrst og fremst Landsspítalans og stjórnunarhátta innan hans. Svo má alltaf deila um fjárveitingar til spítalans, hvort ţćr séu nćgar eđa hvernig stofnunin vinnur međ ţađ fjármagn sem honum er skammtađ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband