Gígurinn á myndinni er ekki í Hafnarfjalli

Myndin með frétt mbl.is er ekki af Hafnarfjalli og í raun og veru allt annað. Þetta er gígur á Geldingahálsi og Hafnardalur, djúpur dalur, skilur á milli.

Um þetta fyrirbrigði skrifað ég um fyrir tveimur árum, sjá hérhérhér og hér. Ég hafði rekist á gamla mynd sem ég hafði tekið úr flugvél fyrir mörgum áratugum, og hélt í fáfræði minni að þetta væri gígur eftir loftstein.

Haraldur Sigurðsson, jarðfræðingur, mum hafa rekist á þessi skrif mína og fjallað síðar um þessa jarðmyndun og meðfylgjandi mynd og fleiri eftir Rax fylgdi viðtali Moggans við Harald.

Vandinn er sá að sumarafleysingarmenn á fjölmiðlum eru margir hverjir ekki góðir í landafræði. Það er miður og þyrftu eldri og reyndari blaðamenn að ritskoða þá svo villum fækki.

Sú fullyrðing að gígurinn á myndinn sé í Hafnarfjalli er jafn vitlaus eins og halda því fram að Öskjuhlíðin sé í Árbæ eða Hvalfell sé hluti af Botnsúlum.


mbl.is Fólkið í Hafnarfjalli fundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það vantar eitthvað uppá landafræðikunnáttu þeirra, ég hélt að flestir vissu hvernig Hafnarfjall lítur út en svo virðist ekki vera??????

Jóhann Elíasson, 3.8.2014 kl. 23:31

2 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Landafræðikunnáttu hefur farið hrakandi síðastliðin ár. Ég geri ráð fyrir að myndin sé sótt í myndabanka Morgunblaðsins eftir stikkorðaleit, en auðveldlega hefði mátt finna aðra mynd af Hafnarfjalli sem sýnir kunnuglegri ásýnd fjallsins. Mér sýnist líka myndin vera tekin í norðaustur- eða austurátt þannig að Hafnarfjall er þar með fyrir aftan ljósmyndarann. :-) 

 

Er þetta ekki Heiðarhorn þarna í bakgrunni?

Erlingur Alfreð Jónsson, 4.8.2014 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband