The Fool on The Hill

Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, og fallisti í prófkjör sama flokks, kann ekki pólitískar rökræður og beitir fyrir sig ókurteisi og dónaskap. Það er líkast til ástæðan fyrir því að flokksbundnir Vinstri grænir töldu sig ekki geta veitt slíkum manni brautargengi.

Stjórnmálamenn eiga að takast á um grundvallaratriði og stefnumörkun. Krafan er hins vegar sú að það sé gert málaefnalega og menn kunni sér hóf. 

Hitt er svo annað mál að oft getur hóflega flutt mál rifið í og jafnvel svo að sá sem fyrir verður fái vart undir því risið. Það er list.

Ólafur Thors sagðist einhvern tímann í þingræðu heyra andstæðing sinn hrista höfuðið.

Þegar Nixon forseti Bandaríkjanna var í framboð birtu andstæðingar hans auglýsingu og í henni var spurt: Myndir þú kaupa notaðan bíl af þessum manni, „Would you buy a used car from this man".

Björn Valur Gíslason er ekki orðsins maður. Hann er gæinn sem stendur uppi á hól með hafnaboltakylfu í hönd og sveiflar henni út í vindinn með hvissi og flissi, engum til ánægju.

Bítlarnir sungu fyrir löngu angurvært lag um fíflið á hæðinni, „The Fool on The Hill“. Í því er að finna þennan texta:

But the fool on the hill
Sees the sun going down
And the eyes in his head
See the world spinning around

Well on the way, head in a cloud
The man of a thousand voices talking perfectly loud
But nobody ever hears him
Or the sound he appears to make
And he never seems to notice

 


mbl.is Karpa um Geir Haarde
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Nú ertu víst að gera Birni Vali hátt undir höfði með því að líkja honum við the fool on the hill, sem þó hafði einhverja jákvæða eiginleika. Björn Valur hefur enga jákvæða eiginleika. Ég held, að fáir þingmenn hafi verið jafn lítilmótlegir og Björn Valur, og er þó af nógum að taka í þingflokki VG gegnum árin.

- Pétur D.

Aztec, 9.6.2014 kl. 15:47

2 Smámynd: Elle_

Satt hjá þér, Pétur, hann er nefnilega gæinn sem hrækir og pissar út í vindinn, og í leiðinni ofan í báða skó.

Elle_, 9.6.2014 kl. 17:39

3 Smámynd: Elle_

Það getur samt alveg verið að hann standi uppi á kletti við þetta?

Elle_, 9.6.2014 kl. 17:58

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir orð Péturs D.  Björn Valur var hnúðurinn á listaverkið  „Vinstri Græn“.

Hrólfur Þ Hraundal, 9.6.2014 kl. 20:30

5 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Því meir og oftar sem Björn Valur opnar munnin og talar bull, því meir dvín fylgi VG.

Það er bara gott.

Vonandi gjammar Björn Valur bara nóg.

Birgir Örn Guðjónsson, 9.6.2014 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband