Björgum heiminum og bönnum skötuát ...

Síđustu daga hef ég sem endranćr ekiđ framhjá fiskbúđ nokkurri og af fnyknum sem frá henni leggur er víst ađ veriđ er ađ selja Ţorláksmessuskötu, dauđkćsta og eitrađa. Bíllinn lenti í gćr í gangtruflunum sem beinlínis má rekja til lyktarinnar frá fiskbúđinni.

Ótrúlegt er til ţess ađ hugsa ađ nokkur mađur skuli vilja slafra í sig skemmda skötu og telja sér um leiđ trú um ađ hún sé holl og bragđgóđ. Dćmin eru mörg. Ég ţekki fólk sem reynir svo mikiđ ađ falla inn í umhverfi sitt ađ ţađ segir ţvert gegn huga sér ađ skemmda skatan sé góđ. Ţetta fólk byrjađi á sömu forsendu ađ reykja. Svo ţegar reykingar féllu úr tísku hćtti ţađ ađ reykja af samfélagsástćđum.
 
Ég á systur sem var alin upp í guđsótta og góđum siđum, rétt eins og ég, en tók upp á ţví ađ byrja ađ reykja tóbak. Ţađ tók nokkra áratugi ađ venja hana af ţessum óţvera. Nćsta ósiđ tók hún upp og ţađ var skötuát. Viđ svo búiđ mátti ekki standa og hún var send til Suđur-Afríku. Ţar hafa innfćddir séđ svo um ađ hún borđar ekki skötu enda blómstrar stúlkan sem aldrei fyrr og yngist međ hverju árinu sem líđur.
 
Út af fyrir sig er ekkert viđ ţađ ađ athuga ţó frjálsir landsmenn skófli í sig skötu, svo framarlega sem ţađ er gjört án ţvingana af nokkru tagi. Hitt er verra og ţađ er hversu náttúran skađast af vinnslu og áti skötu. Alţjóđlegar rannsóknir hafa sannađ ađ fátt eyđir ósónlaginu en skötuát enda fylgir ţví afar mikil ţarmagassframleiđsla og losun ţess sem er gríđarlega hćttuleg.
 
Ég hef ţađ fyrir satt ađ jarđvísindamenn hafi fundiđ sönnun fyrir ţví ađ skötuát á Ţorláksmessu auki hćttuna á auknu kvikustreymi frá iđrum jarđar međ tilheyrandi jarđskjálftum og jafnvel eldgosum. Mér skilst ađ Jarđfrćđistofnun Háskóla Íslands hafi ţegar afhent innanríkisráđherra svarta skýrslu um máliđ.
 
Líffrćđingar hafa fundiđ mjög mikil líkindi međ getuleysi karlmanna og neyslu ţeirra á skötu. Ţetta verđur gert opinbert á vegum Íslenskrar erfđagreiningar eftir áramótin.
 
Raunar mćlist áhrif skötuneyslunnar á efnahag ţjóđarinnar. Á vegum Seđlabankans hafa rannsóknir sýnt ađ skuldir ţjóđarinnar vaxa í réttu hlutfalli viđ sölu á skötu.  
 
Af ţessu má sjá ađ skötuneysla er stórhćttuleg fyrir ţjóđina, ríkiđ, náttúru lands og manna og ekki síđur alheiminn. Mál er komiđ ađ hćtta ţessari vitleysu, hreinlega banna skötuneyslu og bjarga ţannig heiminum. 
 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiđarsson

Er ađ fara í skötuveislu í hádeginu. Hlakka óstjórnlega mikiđ til. Fyrir mig er skötuveislan ekki minni hátíđ en ađfangadagkvöld og rjúpurnar.

Gleđileg jól, Sigurđur

Gunnar Heiđarsson, 23.12.2013 kl. 10:31

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband