Fallega landið sem hvarf

HalslonFriðþjófur Helgason er sextugur. Af því tilefni birtist þessi mynd af honum í Morgunblaðinu í morgun með grein þar sem ættir hans eru raktar. 

Ég þekki ekki Friðþjóf, er bara rétt málkunnugur honum, en ég er aðdáandi hans. Hann er afbragðsgóður ljósmyndari og einstaklega vandaður kvikmyndatökumaður.

Annars vakti myndin athygli mína. Þarna í fjarska er syðsti tindur Kárahnúka en vestan í honum er Kárahnúkastífla og austan við hann er Desjarárdalsstífla.

Það sem er eiginlega merkilegast við myndina er rauða línan sem ég hef bætt inn á hana og hún sýnir sirka yfirborð Hálslóns. Þar sem þremenningarnir standa er nú djúpt vatn, manngert lón sem er áberandi kennileiti á landakorti. Þetta fallega land er horfið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband