Olíuræningjar í malarnámum

Ég hef stundum verið að býsnast yfir því hvers vegna við sem höfum ánægju af fjallaferðum getum ekki ekið að fjallsrótum Vífilsfells og gengið þar upp eins og við erum vön. Þá hef ég tekið sem dæmi mannvonsku þeirra sem stunda malarnámið á þessum slóðum. Þeir loka fyrir fínan veg að fjallinu.

Nú hef ég fengið réttar upplýsingar og ástæðan yfir lokun vegsins er ekki mannvonska. Glæpahundar fara þarna í skjóli nætur og pumpa olíu af vinnuvélum sem eru á svæðinu. Þetta getur ekkert fyrirtæki búið við og þess vegna er malarvinnslufyrirtækið að undirbúa lokun á veginum inn í námuna við Suðurlandsveginn. 

Ræningjar eru svo latir að þeir nenna ekki að ganga þessa leið fram og til baka. 


mbl.is Eldsneyti dælt af sjúkrabíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband