Kona í rauðum loftbelg

Saga um konu nokkra í rauðum loftbelg gengur á netinu.
 
Það rann seint og um síðir upp fyrir henni að hún hafði villst af leið.

Hún lækkaði flugið og sá mann einn á jörðu niðri. Hún lækkaði sig enn meira kallaði á manninn. „Afsakið, en getur þú hjálpað mér? Ég átti stefnumót við vinkonu mína fyrir klukkutíma, en ég veit ekki hvar ég er stödd!“

Maðurinn svaraði: „Þú ert í rauðum loftbelg í ca 30 feta hæð yfir jörð ... á 64º 09´117” norðlægrar breiddargráðu og 21º 57´“144” vestlægrar lengdargráðu.

“Þú hlýtur að vera tæknimaður." sagði konan.
 
„Já það er ég," svaraði maðurinn, „en hvernig vissir þú það?“

„Tja,“ sagði konan, „allt sem þú hefur sagt, er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um það hvernig ég á að nota upplýsingarnar. Staðreyndin er að ég veit ekki enn hvar ég er og það eina sem ég hef fengið út úr okkar samtali er að mér hefur seinkað enn meira.“

Maðurinn á jörðinni svaraði um hæl: „Þú hlýtur að vera í Samfylkingunni.“

“Það er ég," svaraði konan, „en hvernig vissir þú það?“

„Það er svosem einfalt. Þú veist ekki hvar þú ert stödd, né hvert þú stefnir. Þú kemst ferðar þinnar á loftinu einu. Þú ert búin að gefa loforð, sem þú ert ekki fær um að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi vandamálið þitt. Staðreyndin er bara þessi; þú ert í sömu sporum og þú varst áður en við hittumst en allt í einu er allt mér að kenna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband