Lilja biðji þjóð sína afsökunar á Alþingi

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur beðist afsökunar á Fésbókarsíðu sinni á þeim mistökum sem gerð voru við samþykkt frumvarps um stjórnlagaþing. Það er gott og blessað, hefði ekki uppgötvað þetta hvísl nema af því að frétt um það birtist á mbl.is. En áttum við okkur ekki á því að þetta er rangur vettvangur og miður að Lilja skuli ekki átta sig á því?

Lilja á að standa upp á Alþingi og biðja þjóð sína afsökunar, þar er staðurinn og enginn annar. Síðan getur hún fjallað um málið á öðrum þeim stöðum sem henni hentar. Alþingi er löggjafarsamkundan, þar gerði stjórnarmeirihluti Vinstri grænna og Samfylkingarinnar mistök sín, þar upphófst klúðrið, og þar ber þessu fólki að biðjast afsökunar en ekki á amerískri vefsíðu. Þarna er afsökunarbeiðnin skráð í fundargerðarbækur og geymist fyrir framtíðina.

Þetta voru taktísk mistök hjá Lilju og óskandi að hún standi við afsökunarbeiðni sína á Alþingi. 


mbl.is Lilja biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Held að nær væri að hinir 62 þingmenn biðust afsökunar á stjórnleysi síðustu ára, en ekki Lilja Mósesdóttir sem þó hefur gert það á Facebooksíðu sinni.

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband