Til hamingju In Defence og Brynjar Nielson

Samtökin In Defence hafa af mikilli fagmennsku unnið gegn Icesave samningunum sem ríkisstjórnin hefur reynt að þröngva inn á þjóðina. Sigur samtakanna lýsti sér í því að í þjóðaratkvæðagreiðslu var síðassti samningurinn kolfelldur. Ríkissjórn með vott af skynsemi hefði sagt af sér við þessi úrslit. Þess í stað hefur hún allt á hornum sér og þykist sjálf hafa unnið sigur.

Brynjar Nielson lögmaður er duglegur maður og greindur. Hann hefur sýnt mikla skynsemi í störfum sínum og lætur sér fátt um finnast þótt margir séu á móti sér. Enda hefur hann yfirleitt rétt fyrir sér.

Báðir þessir aðilar eru vel að frelsisverðlaununum komnir. Og Samband ungra sjálfstæðismanna á þakkir skyldar fyrir framtakið. 


mbl.is Brynjar og InDefence fá frelsisverðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi verðlaun heita fullu nafni "Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar."  Öllu má nafni gefa segi ég nú bara.  Hins vegar eiga þessir verðlaunahafar þetta óneitanlega skilið.  Þau hafa unnið mikið og þarft verk.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 13:14

2 identicon

Brynjar er eldklár en því miður er ekki hlustað á hann nér Viðar Má og ekki heldur þótt ESB sé búið að viðurkenna að ekki sé ríkisábyrgð??

Hvað skyldi Steingrímur J ætla að ganga langt gegn vilja þjóðarinnar?   Engin stóriðja verður og alls óvíst um Búðarhálsvirkjun þar sem fjármögnun vantar og virkjanaleyfi.

Helguvíkurverkefnið og flest annað sem hefði getað hjálpað Suðurnesjamönnum hefur verið skotið í kaf af VG en samt heldur fólk í vonina við þetta fólk.

Það mun enginn óvitlaus erlendur fjárfestir stíga fæti hér á landi eftir uppákomuna með Magma.

Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband