Hraunið rennur norður og niður

Tvennt getur gerst. Annað hvort hleðst hraunið upp í kringum gíginn eða hraunið renni niður á við.

Landslagi háttar þannig að hraunið hlýtur að renna sömu leið og jökullinn hefur gert um árhundruð, í gegnum skarðið og niður að lónsstæðinu.

Sagt er að fyrirsagnir skipti jafnmiklu máli og sjálf fréttin. Hún fjallar þó um flest annað en þá sjálfsögðu staðreynd að hraun renni norður og niður úr toppgíg Eyjafjallajökuls.


mbl.is Hraun rennur til norðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hraunið rennur niður.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 3.5.2010 kl. 13:54

2 Smámynd: Óskar

Það væri gaman að vita hvort efnasamsetning gosefna sé sú sama nú og í upphafi gossins.  Ég hef grun um að það sé meira basalt í þessu núna og að "súri vasinn" sé orðinn tómur og gosefnin streymi viðstöðulítið djúpt að. 

8 mjög djúpir skjálftar á 10 mínútna kafla um kl 5 í morgun eru lika athyglisverðir.  Er enn meira magn gosefna að troða sér upp?  Ekki orð um þetta í fjölmiðlum i dag.

Óskar, 3.5.2010 kl. 14:00

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Það er nú eiginlega þannig samkvæmt honum Haraldi eldfjallasérfræðingi úr Stykkishólmi að það sem upp kemur er andesít. Hef litla hugmynd um annað en að það er skylt líparíti, er svona hálfsúrt, mitt á milli basalts og líparíts. Hraunið hleðst upp, rennur afar hægt

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 3.5.2010 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband