Af hverju er enn bann norðan Hálsins?

Greinilega samantekin ráð lögreglu, veðurfræðinga og fréttamanna að letja fólk til ferða á Hálsinn. Skelfilegar tölur um vindkælingu og frosmark gegna þessu hlutverki.

Hins vegar háir það ekki neinum sem vel er klæddur. Vandamálið getur hins vegar verið vikurinn sem fer af stað í rokinu í bland við snjóinn. Það verður nú skafrenningur í lagi. Raunar hræringur ...

Áhugi minn beinist nú að norðurhliðinni, gönguleiðinni upp úr Goðalandi. Bíð spenntur eftir því að banni við umferð inn í Þórsmörk verði aflétt. Eyjafjallajökull er tekinn að hjaðna, gosóróinn líka og vatnið í ánum var aldrei meir en í meðallagi á sumrin. Til hvers þá að banna umferð inn í Þórsmörk og Goðaland? Fyrst okkur vitleysingunum var leyft að fara á Fimmvörðuháls sunnanmegin af hverju ekki leyfa okkur að fara norðanmegin? 


mbl.is Ekkert ferðaveður á gossvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Það er hætta vegna gas mengunar í lautum og giljum.

Þórarinn Baldursson, 29.3.2010 kl. 09:18

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ef vindurinn er svona hvass á norðan feykir hann gasinu til suðurs upp á fjallið. 

Ómar Ragnarsson, 29.3.2010 kl. 09:36

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Nú er ekki nein hætta á eiturgufum meðan hreyfir vind, vöxtur í ánum fer minnkandi, var samt aldrei meira en á þokkalegum sumardegi. Sem sagt engin rök fyrir banni.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 29.3.2010 kl. 11:58

4 identicon

Ég verð að vera sammála Sigurði og Ómari. Ég sé enga ástæðu til að loka lengur inn í Mörk. Og í þessu hávaðaroki sem er á svæðinu núna fjúka allar eiturgufur á haf út.

Ég er búinn að fara tvisvar uppeftir á jeppa og komast bæði að fossinum í Hrunagili og eins í Hvannárgili.

Hvorir tveggja eru / voru stórkostlegir og án efa mjög gaman fyrir þá sem hafa getur til að ganga upp frá Goðalandi að koma að gosinu úr þeirri átt.

Benedikt Sævar Magnússon (IP-tala skráð) 29.3.2010 kl. 13:19

5 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Sigurður, þú hefur bara ekkert að gera uppettir. Við erum búnir að margskoða þetta og það er ekkert að sjá.

Kristján Sigurður Kristjánsson, 29.3.2010 kl. 19:51

6 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Er þá ekkert hraunrennsli og kannski ekkert gos ...?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 29.3.2010 kl. 20:21

7 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

ja, þetta er bara okkar mál og það er "EKKERT ferðaveður".

Kristján Sigurður Kristjánsson, 29.3.2010 kl. 21:06

8 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

... en þessi fína veðurspá yfir páskana?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 29.3.2010 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband