Þegar kaupa skal tjald ...

Velja tjaldStundum finnst mér leiðbeiningar um kaup á útvistarbúnaði hálfbjánalegar. Svona yfirlýsing, sem vissulega er ansi hrokafull, byggist þó á þeirri staðreynd að ég fer aldrei í „útilegu“ til að líkja eftir þeirri aðstöðunni heima.

Tek til dæmis aldrei með mér glymskratta, sjónvarp eða álíka sem sumir geta ekki verið án. Ástæðan er einföld, þetta er allt svo andsk... þungt þegar maður hefur bara einn bakpoka og enga burðarmenn.

Auðvitað skiptir máli hvernig ferðir fólk fer í, hvort tjaldað sé á einum stað allan tímann, hvort börn séu með í för og svo framvegis.

Jæja, nóg um það. Hins vegar rakst ég á ansi skemmtilega teikningu á bandarískri vefsíðu sem kynnir útvistarvörur og nefnist GearJunky eða Græjufíkill. Þar fáum við fíklarnir ansi margar hugmyndir og margt fæst hér á landi.

Að vísu er þetta allt á ensku en lesandinn tekur vonandi viljann fyrir verkið.

Þetta er ansi skemmtilega uppsett fyrir þá sem ætla að kaupa sér tjald.

Held að flestir sem ég þekki myndu velja sér það sem á myndinni er kallað 3-season eða 4-season. Hið seinna er fyrir allar árstíðir en hitt fyrir þrjár ... sem varla á við hér á landi.

Skyldu svona tjöld fást í Costco?

Gott er að tvísmella á teikninga, þá birtist hún stærri og skýrari.


Bloggfærslur 30. júní 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband