Hross sem skemma göngustíga og kúka á ţá

DSC_1236Tveir hópar ćttu aldrei ađ sjást í Heiđmörk, ţeirri yndislegu paradís fyrir útivistarfólk. Annars vegar eru ţađ vélhjólapeyjar og hins vegar hestamenn. Sem betur fer eru báđir ţessir hópar frekar sjaldgćfir á göngustígum en ţó hef ég rekist á ţá báđa mér og fleirum til mikils ama.

Göngustígar í Heiđmörk eru ekki fyrir vélhjól, ţau eyđileggja ţá, spćna ţá upp.

Reiđhjólkafólkiđ skemmir hins vegar lítiđ. Flestir fara varlega og sumir syngja í kröppum blindbeygjum. Slíkt hjálpar nema ţeim sem halda ađ skylt sé ađ loka augunum og taka undir. Ţeir lćra ţó af reynslunni.

Hestar eiga ekki ađ vera á göngustígum í Heiđmörk. Ţeir tćta göngustígana upp og gera göngufólki, hlaupurum og jafnvel hjólafólki erfitt fyrir.

DSC_1239Ég var í Heiđmörk í dag og tók ţá ţessar myndir. Hófaförin leyna sér ekki. Mölin í stígnum hafđi rótast upp og viđspyrnan fyrir göngumanninn var ţung. Tek ţađ fram ađ ţetta var eins á einum legg af mörgum, ţó er hann um 1,5 km.

Einu sinni mćtti ég reiđmanni á afar ţröngum göngustíg í Heiđmörk. Hann var einstaklega kurteis, sagđi ţó ekki orđ, nikkađi eins og viđ vćrum kunningjar. Hesturinn var hofmóđugur, lét sem hann sći mig ekki, hvađ ţá ađ hann bćri kennsl á mig, sem hefđi líklega veriđ skrýtiđ.

Annar okkar ţurfti snögglega ađ vćgja og hrökklast út í lúpínuna. Lesandinn má geta hvor okkar ţađ var.

Svo hurfu báđir bókstaflega út í buskann en um leiđ sýndi annar ţeirra göngumanninum ţá fyrirlitningu ađ kúka hressilega á stíginn. Viđ ţví átti ég ekkert svar, var bara orđlaus, sem gerist stundum. Ţá fannst mér kominn tími til ađ fara heim.


Lćknir sem sker löggur smávćgilega á höndum og fótum ...

monkeyyLögreglan er uppátektarsöm en ekki er beinlínis hćgt ađ segja ađ stíllinn í skrifum hennar sé áhugaverđur, frekar svona ... „bjúrókratískur“ eđa ţannig, ađ minnsta kosti í ţessari frétt á mbl.is ţar sem vitnađ er í hana.

Hvađ skyldu vera „ávanaefni“ í orđasafni löggunnar? Tóbak, sykurvörur, kaffi, tóbak og auđvitađ áfengi. Af fréttinni má ráđa ađ löggan telji ţetta einhvers konar safnheit um eitthvađ ljótt. 

Hvađ eru ţá ávana- og fíkniefni? Ţađ samhengi vefs ábyggilega fyrir skýrara fólki en mér. Er átt viđ tóbak og hass, kaffi og heróín eđa kók og prins póló međ ögn af lsd?

Ökumađur­inn er grunađur um akst­ur und­ir áhrif­um áv­ana- og fíkni­efna.

Ég hreinlega áttaa mig ekki á ţessari samsetningu; „ávana og fíkniefni“. Líklega er ţetta bara hugsunarlaus umfjöllun, tafs. Ţó má vera ađ ávanaefni séu fíkniefni í huga löggunnar og kann ökumađurinn ađ hafa veriđ undir áhrifum fíkniefna og fíkniefna ... Svona endurtekningar eru afar algengar, rétt eins og ţegar talađ er um bjór og brennivín, viskí og sóda, gin og tónik ... Úbbs ... nei dreg ţetta til baka.

Svo er ţađ ţetta fallega orđ „lokunarpóstur“. Get ímyndađ mér ađ ţegar í harđbakkann slćr sendir Orkuveitan skuldseigum viđskiptamanni lokunarpóst. Síđasta viđvörun áđur en ađ kall međ kaskeit kemur og lokar fyrir rafmagn og hita í íbúđinni.

Grínlaust, nafnorđavćđing íslenskunnar er međ slíkum endemum ađ ekki er lengur hćgt ađ segja og skrifa ađ vegi hafi veriđ lokađ. Nćst verđur ábyggilega sagt ađ einhver lögreglumađur hafi stundađ lokunarpósta og sé sérhćfđur í ţeirri iđju. Stöđuheitiđ verđur ţá líklega lokunarpóstslögreglusérfrćđingur. Tek ţađ fram ađ ég er ađ grínast.

Ađ lokum er ţađ ţetta gullkorn:

Lög­reglu­menn­irn­ir fóru til skođunar hjá lćkni á lög­reglu­stöđinni og fengu ţeir smá­sk­urđi á hönd­um og fót­um en líkn­ar­belg­ur sprakk í bíln­um viđ árekst­ur­inn.

Skyldu lögreglumennirnir hafa fengiđ „smáskurđi á höndum og fótum“ hjá lćkninum á lögreglustöđunni eđa kemur svona skađi ţegar líknabelgur sem springur. Í fávisku minni hallast helst ađ ţví fyrrnefnda enda bendir ekkert til ţess ađ „líknarbelgur“ eigi ađ gera annađ en ađ verja fólk í framsćtum bíls, nafniđ bendir líka til ţess.

Ţó má vera ađ lćknirinn hafi veriđ ólátabelgur undir áhrifum ávanaefna eins og sykurs og tóbaks og ţá er illt í efni. Í gamla daga ţegar ég var í sumarlöggunni átti löggufólk afdrep til hvíldar og endurnćringar á lögreglustöđvum. Nú veđur ţar inn og út lćknir sem sker fólk á höndum og fótum. 

Tek ţađ fram ađ međfylgjandi mynd er sögđ líkjast mér. Síst af öllu er henni ćtlađ ađ gera lítiđ úr lögreglunni ... 


mbl.is Langri eftirför lauk međ árekstri
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 20. maí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband