Draumpspakir spá sjö marka tap gegn Portúgölum

Tala sjö er merkileg. Biblíulega, stærðfræðilega og annars. Í dag hafa hringt í mig sjö manns sem telja sig draumspaka, konur og karlar af öllum kynjum og aldri. Tilgangurinn var að segja mér hvernig leikurinn við Portúgali fer í kvöld.

Öll halda því fram að við töpum með sjö mörkum gegn engu. Einn gerir hins vegar þann fyrirvara á spá sinni að ef Eiður er í byrjunarliðinu vinnur íslenska liðið með einu marki sem Selfyssingurinn í liðinu skorar á 72. mínútu. að öðrum kosti verður þetta dagur Ronaldós sem skorar fjögur mörk.

Hef enga trú á því að leikurinn fari svona en ætla ekki að horfa á hann. Geng upp á Vífilsfell í staðin og set niður nokkrar stikur.

Og meðan ég man, Ísland lendir í þriðja sæti í riðlinum og kemst áfram. Þjóðverjar verða Evrópumeistarar. Englendingar komast ekki í milliriðil. Lars fer heim til Svíþjóðar.


Bloggfærslur 14. júní 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband