Dellumakerí Samfylkingarinnar

Frumvarp Samfylkingarinnar til laga um tímabundið bann við sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum er tóm della og tilgangurinn eingöngu áróðurslegur. Samfylkingin heldur því fram að allskyndilega geti ríkisstjórnin selt til dæmis Íslandsbanka. Það myndi aldrei ganga upp.

Þetta veit Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar enda er hann sjálfur í baráttu um að halda völdum innan flokksins og þar að auki er flokkurinn kominn að hálfu í kosningabaráttu.

Frumvarpið er eins og vantrauststillagan, dæmd til að falla, verði hún á annað borð tekin til umræðu. 

Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, hefur látið hafa það eftir sér að bankarnir verði ekki seldir á næstunni. 

Dellan er í því fólgin að stjórnarandaðan er gjörsamlega stefnulaus. Flestir sem henni tilheyra eru á fallanda fæti miðað við skoðanakannanir. Einn flokkur þýtur upp á við en veit ekkert hvað hann á til bragðs að taka. Helst að Píratar grípi til frjálshyggjuúrræða í úrræðaleysi sínu.


mbl.is Tímabundið bann við bankasölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. apríl 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband