Allt gult í grænni auglýsingu

NorðurálAuglýsingar skipta mál, það er óumdeilt. Vel gerðar auglýsingar eru styrkur, lélegar auglýsingar geta skapað vandamál.

Til hliðar er auglýsing Norðuráls þar sem fyrirtækið óskar Landsvirkjun til hamingju með 50 ár af grænni orku.

Því miður er ekkert grænt í auglýsingunni. Ekkert. Gult grasið virðist sviðið og jafnvel snjórinn í fjöllunum er gulur. Vonandi er þetta ekki vegna mengunar frá Norðuráli.

Líklegasta skýringin er sú að myndin er tekin að vorlagi eða í vetrarsól. Hönnuður auglýsingarinnar hefur síðan aðeins fiktað við hana, reynt að gera hana hlýlegri. Afleiðing er sú að yfir myndinni er einhver gul slikja.

Valið á myndinni er mistök, sé ætlunin að sýna fram á græna orku. Velja hefði þurft betri mynd til að auglýsing hefði náð tilgangi sínum.


Bloggfærslur 7. maí 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband